![]() |
| Stórhættulegur farmur - Biblía greindist um borð í Snæfelli EA 110. |
Snæfell EA 310 - áður þekkt sem Akureyrin EA 110 , er væntanlegt til Íslands með stórhættulegan farm innanborðs - biblíu sem er nokkurra áratuga gömul.
Þar sem á Íslandi er 70 manna hópur sem lítur svo á að trúarleg tákn ógni lífi sínu þótti greinarhöfundi rjett að vara Siðmennt og Vantrú við hinum stórhættulega skipsfarmi , en trúarleg tákn sem hafa sótt skrifstofur þeirra heim hafa breyst í útliti og safnað vígtönnum og klóm til að sýna mátt sinn og meginn.
Fyrir vikið fjölgaði meðlimum óðfluga sem urðu vitni af umbreytingunni og nú er talað um erfðabreytt trúartákn , og litið svo á að trúarleg tákn sjeu hættulegri heldur en kjarnorkuvopn og sjálf hryðjuverkaváin.
Eigandi Biblíunnar er vinsamlegast og kurteisislega beðinn um að hafa samband við Gagnaeyðingu til að fá hinum hættulega farmi eytt sem allra fyrst svo að ekkert mein hljótist af farminum.
Í lagi er hins vegar fyrir Snæfell EA 310 að geyma langdrægar kjarnorkueldflaugar.

No comments:
Post a Comment