Popular Posts

Saturday, March 5, 2011

Ígúönufólkið mótmælir harðlega áformum Ögmundar óþekka


Styður Vítis - Engla og Útlaga. Þessi mótmælandi er öskureiður út í Ögmund Jónasson og krefst þess að Ögmundur sem og allir meðlimir órólegu deildarinnar í Vinstri Grænum sýni skilríki hyggist þeir heimsækja Galapagos - eyjar.

Íguana fólkið hefur sent Alþingi einróma , harðorða fordæmingu á tillögum dómsmálaráðherra , Ögmundar óþekka , þess efnis að auka lögreglueftirlit á höfuðborgarsvæðinu og víðar , þar eð ígúönufólkið óttast að þar með verði hugmyndir Ögmundar innblástur til skipulagðrar njósnastarfsemi á búsvæðum sæeðla og annara ígúana eðla í Galapagos og víðs vegar annars staðar um heiminn þar sem ígúönur hafast við.
´Vjer mótmælum tillögum dómsmálaráðherra eða innanríkismálaráðherra Íslands harðlega og förum fram á að þessar ólöglegu persónunjósnir hafi það ei í för með sjer að settar verði upp öryggismyndavjelar með tilheyrandi vandræðum og veseni á Galapagos - eyjum og á þeim svæðum þar sem vjer ígúönur , sæ - sem og land - ígúönur dveljum.´
Ígúönufólkið er vinsælt í Brazilíu og Suður - Ameríku og sjerstaklega Perú , þar sem það nýtur mikillra vinsælda og er á skraut pýramíðabygginga Mayanna og víðar. Skiljanlega nýtur ígúönufólkið stuðnings Mayanna , afkomenda Inkanna og fleiri þjóðarbrota víðs vegar um Suður og Mið - Ameríku , meira að segja trjáfólksins.
Í óþökk ígúönufólksins. Ráðherra innanríkis - dóms - og kirkjumála , herra Ögmundur Jónasson , einnig þekktur sem Ögmundur óþekki. Ögmundur er mjög óánægður með að hafa ekki fengið heimild til þess að sækja um inngöngu í mótorhjólagengi.

No comments:

Post a Comment