Popular Posts

Saturday, March 5, 2011

Menntamálaráðherra stofnar Sith akademíu


Katrín Jakobsdóttir er að undirbúa sig undir íslenska menningarnótt með tilheyrandi föðrun og sækir líkamsræktarstöðvar víða til að geta lært að berjast og verja sig eins og kven Sithar. Katrín er til hægri en þjálfari hennar í Sith bardagatækni er til vinstri.

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur ákveðið að stofna Sith akademíu.
Katrín telur að með þessu framtaki verði auðveldara að ráða við niðurskurð í skólakerfinu og sporna við hefðbundnum rekstri dýrramenntastofnana.
Katrín er þeirrar skoðunar að það sé alvarlegt mál að skortur sé á kennurum og nemendum þess efnis og telur að auka þurfi sérþekkingu nemenda og kennara á sviði Sith heimspeki.
Aðspurð segist Katrín hafa verið mikill aðdáandi Star Wars myndanna og spili Star Wars leik um Sitha við Steingrím J. Sigfússon hvenær sem færi gefst þegar búið er að sinna málefnum fjölskyldunnar.
Líklegast verður ein af ónutuðu byggingunum á Vestfjörðum tekin yfir og höfð undir rekstur hins íslenska Sith Skóla sem Katrín hefur ákvað að kalla Sith Atlantshafsskólann eða Atlantic Sith Academy.
Háskólinn á Bifröst og háskólinn í Reykjavík styðja hugmyndina og þykja hana lofsvert framtak til kynningar íslenskrar menningar erlendis og til erlendra aðdáenda Star Wars myndanna og áhugafólks um Sithisma.
Katrín gekk í Sith akademíu á Facebook og brautskráðist þaðan vorið 2004 , og hefur notið sín æ síðan sem Sith.
Katrín er ekkert lamb að leika við og hefur limlestað marga í gegnum tíðina í Sith bardaga æfingaprógrömmum.
Menningarnótt verður haldin 18 ágúst næstkomandi sem þjóðkunna er. 


No comments:

Post a Comment