Jefferey Pritchett fjölmiðlamaður hefur tilkynnt á Facebook síðu sinni að hann hyggist kaupa gerfiblóð frá Hókus Pókus með það að markmiði að færa fórnir til heiðurs sólguðsins Ra........
Með þessu hyggst Pritchett blíðka egypsku guðina og verur frá öðrum hnöttum til þess að draga úr líkunum á að frekari stríðsátök brjótist út í Lýbíu og Egyptalandi.
Ekki hefur náðst í forseta Egyptalands vegna tilkynningar Jefferey Pritchett. Jefferey hefur verið reglulegur viðskiptavinur Hókus Pókus gegnum tíðina og vikulega keypt gerfiblóð þaðan og þess vegna sjást gerfiblóðflöskur í Hókus Pókus ekki eins auðveldlega og áður þegar gengið er inn í búðina og menn leita sjer að gerfiblóði með það að markmiði að kaupa.
The Examiner styður eindregið gerfiblóðskaup Jefferey Pritchett en eru skiljanlega flemstri slegnir yfir því hverjum á að fórnfæra gerfiblóðið.
´Vérr værum að sjálfsögðu nær því að skilja hugarfar þessa sjervitra manns ef að hann færði blóðfórn sína til Maradonna , en það virðist greinilega ekki á dagskrá hjá honum næstu misserin´ segir ritstjóri The Examiner.
Jefferey Pritchett hefur ekki látið í ljós um þessar mundir hvort hann styðji Maradonna eða tilbiðji Maradonna sem guð , en ljóst er að þó að hann sje að íhuga alvarlega að færa Amon Ra gerfiblóð snýst það ekkert um hvort hann trúi eða trúi ei á egypska sólguðinn.
Hvernig væri nú að menn færu að fórnfæra til Chuck Norris?
![]() |
| Amon Ra hefur greinilega afþakkað tilboð Jeffereys......sko sæta sleikibrjóstsykurinn hans....... |


No comments:
Post a Comment