Framsóknarflokkurinn hefur hræðst að eiga ekki Eyjuna og því ákveðið að kaupa hana.
Um hvaða Eyju erum við að tala?
Dularfullu eyjuna í Tinnabókunum sem Tinni stendur á , þessari með sveppnum á.
Ef rjett skal greint frá sannleikanum samkvæmt á umrædd Tinnabók að hafa heitið Dularfulla Stjarnan.
Tinni og Kolbeinn Kafteinn sjást kanna eyju sem býr yfir undraverðum eiginleikum og sveppi sem eiga það til að springa í loft upp og vera þar af leiðandi engum unnanda ofskynjunarsveppa til gagns.
Líklega er um að ræða skilaboð til þeirra eyjunotenda sem ei vildu vera framar á Eyjunni eftir að Framsóknarmenn yfirtóku hana.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN ER VINSAMLEGAST OG KURTEISISLEGA BEÐINN UM AÐ HAFA SAMBAND VIÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR TIL AÐ STAÐFESTA EIGN SINNI Á ÞESSARI EYJU , HVAR SVO SEM HÚN KYNNI AÐ VERA STAÐSETT (t.d. í Kyrrahafi osv.frv).

No comments:
Post a Comment