Popular Posts

Thursday, March 3, 2011

Sjerstakur saksóknari meðal ofurhetjanna í nýrri Tim Kring þáttaröð


Ólafur Þór Hauksson var skipaður af Birni Bjarnasyni að sögn Wikipedia til þess að gjörast sjerstakur ríkissaksóknari í rannsókn allsherjarnefndar Alþingis á aðdragandanum að baki hins íslenska efnahagshruns , sem var að sjálfsögðu orsakað af miklum hluta til af Alþingi sjálfu , Birni Bjarnasyni , Davíð Oddssyni og fleirum sem hafa haft tengsl við Alþingi og önnur skipulögð glæpasamtök á Íslandi.

Tim Kring hefur ráðið sjerstakann saksóknara til að gegna hlutverki ofurhetju í nýrri þáttaröð sem hann er að framleiða í samvinnu við Fox Television.
Ofurhetjan berst við illa reknar sjónvarpsstöðvar og dreifiaðila sjónvarpsefnis sem vilja ráðskast með framleiðendur efnisins sjálfs og þá sem fá hugmyndir að efninu og brjóta þannig á rjettindum þeirra í stað þess að virða rjett þeirra til að ákveða hvað þeir vilji gera við sín sköpunarverk.
Kvartað hefur verið undan því sáran af Heroes aðdáendum , að ákveðið hafi verið að síðasta þáttaröð verði líklegast sú síðasta og að hún skyldi enda í sirkus.
Sjerstakur saksóknari mun að sjálfsögðu leika sjálfann sig á Íslandi í hinni nýju ofurhetjuþáttaröð , en spurning er hvort þörf sje á fleiri ofurhetjum en sjerstökum ríkissaksóknara um þessar mundir til að gegna hlutverkum í sjónvarpsþáttaröðum.
Ofurhetjur hafa hingað til unað best við sig í teiknimyndablöðum og hasarblöðum en nú sitja þær fyrir sem sjónvarpsþátta - og kvikmyndaefni og hafa vinsældir þeirra hvergi hvikað.
Þessi maður tengist á engann hátt íslenska efnahagshruninu - Tim Kring sendandi bros til sjerstaks saksóknara til að auka líkurnar á því að hann komi í áheyrnarpróf og hljóti þjálfun og innvígslu sem gallvösk ofurhetja. Á Íslandi eru skúrkar tilbeðnir sem ofurhetjur en ofurhetjur meðhöndlaðar sem skúrkar.

No comments:

Post a Comment