Múmínpabbi , múmínmamma og öll önnur stök íbúa mengis Múmínálfadalsins hafa ákveðið að taka upp hanskann fyrir herra Helga Þór Ingason forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur , og biðjast griða fyrir örlögunum svo að heimsendir breiðist ekki frekar út um heiminn en hann hefur gerst hjá Orkuveitunni.
Helgi og fjelgar voru nefnilega feiknalega duglegir og öflugir í tengslum við að flýta fyrir dómsdegi , en auðvitað voru þeir sem komu á undan herra Helga miklu fljótari og duglegri heldur en Helgi.
Tveir þessara manna höfðu verið í útvarpsviðtali og hlegið að íslensku þjóðinni en þar var auðvitað alls ekki um herra Helga að ræða.
Nú er helgi framundan og því er gott að minnast á a.m.k. einn Helga , og helst einhvern skemmtilegan Helga sem er tilbúinn til þess að vinna fyrir sjálfsskipaðan ´skemmtilegan´ mann , betur þekktur sem Jón Gnarr borgarstjóri , vandræðagemsinn (gemlingurinn) sem er alltaf að abbast upp á krakkana í grunn - og framhaldsskólunum og ráðskast með foreldra þeirra og gera sig að algjöru fífli í viðtölum.
Múmínálfarnir hafa áður komið við sögu í íslenskum fjölmiðlum , t.d. í tengslum við umræðuna um Björk vegna dálætis hennar á þeim og að sjálfsögðu dálæti borgarstjórans og forystu Besta flokksins á hinu ágæta starfi þeirra.
Kannski fólst velgengni Múmínálfanna í þeirri staðreynd , að Múmíndalurinn er staddur víðs fjarri annari eins drasl málmbræðslumiðstöð og Ísland er orðið að.


No comments:
Post a Comment