![]() |
| Efst á mynd til hægri - vændiskonur frá öðrum hnetti ekki velkomnar í Dulce. Þær fá ekki einu sinni að dvelja í sjálfu alræmdu neðanjarðarbyrginu þar sem það er sagt hafa fullnýtt allt sitt pláss. |
Vændiskonur frá framandlegri reikistjörnu hafa verið sendar aftur til síns heima af bæjarstjóranum í smábænum Dulce í Bandaríkjunum sem í dag er vinsæll ferðamannastaður.
Vændiskonurnar eru afar óánægðar með þessi viðbrögð og höfðu talið að Jörðin væri friðsamleg reikistjarna þar sem byggi friðsamt og gott fólk og þar sem enginn heygi tilgangslaust stríð eða taki þátt í tilgangslausum bardögum.
Vændiskonunum hafði verið tjáð í skilaboðum frá SETI sem Carl Sagan og fjelagar sömdu fyrir löngu síðan og sem voru send út í geim , að Jörðin væri friðsamlegur staður þar sem gott væri fyrir geimverur að dvelja á og þá sjerstaklega vændiskonur svo lengi sem þær líkjast nógu mikið blessuðu mannfólkinu.
Aðdáendur vændiskvenna í Dulce eru að sjálfsögðu mjög óánægðir með að vændiskonurnar fái ekki að sækja um hæli en það myndi gera þeim auðveldara að fá dvalarleyfi.

No comments:
Post a Comment